Danskur markvörður spilaði með Víkingum í gær Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. nóvember 2014 09:30 Ingvar Þór Kale hefur varið mark Víkings undanfarin tvö ár eftir endurkomuna frá Breiðabliki. vísir/stefán
Danski markvörðurinn Thomas Nielsen spilaði æfingaleik með Pepsi-deildar liði Víkings í gær gegn 1. deildar liðið Þróttar. Víkingar höfðu betur, 4-0, en mikið af leikmönnum sem liðin eru að skoða spiluðu leikinn. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvö af mörkum Víkinga beint úr aukaspyrnum. Í marki Víkings í leiknum stóð Daninn Thomas Nielsen, 22 ára gamall leikmaður sem uppalinn er hjá Danmerkurmeisturum Álaborgar. Hann hefur undanfarin tvö ár spilað með Skjold og Lindholm í neðri deildum Danmerkur.Thomas Nielsen.mynd/lindholmif.dk„Hann var á reynslu hjá okkur í viku og við vildum sjá hann í leik. Hann fór heim í morgun,“ segir Milos Milojevic, annar þjálfara Víkings, við Vísi. „Hann leit vel út þannig við Óli Þórðar ætlum að ræða þetta betur. Þetta er strákur sem var í akademíunni hjá Álaborg og er vel skólaður. Við þurfum að skoða kostina og gallana núna,“ segir Milos. Ingvar Þór Kale sem varði mark Víkings í sumar verður samningslaus um áramótin. „Það eru samningaviðræður í gangi. Við viljum halda Ingvari þannig vonandi ganga samningaviðræðurnar upp,“ segir Milos. Daninn er mjög líklegur til að verja mark Víkings fari svo að Ingver yfirgefi Víking, en helst vill Milos hafa þá báða næsta sumar. „Það væri draumur að hafa þá báða, en ef Ingvar verður áfram efast ég um að svo verði. Fari Ingvar verður Nielsen líklega númer eitt ef við getum fengið hann,“ segir Milos Milojevic.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira