Fréttir af flugi

Fréttir af flugi

Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hækkar verðmatið á Icelandair þótt út­lit sé fyrir yfir tíu milljarða rekstrar­tap

Þrátt fyrir að óvissan hafi sjaldan verið meiri í rekstri Icelandair, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs og kjaradeilna við flugmenn, þá er félagið verðmetið á nærri tvöfalt hærra verði en núverandi markaðsgengi í nýrri greiningu. Því er spáð að Icelandair muni skila yfir tíu milljarða króna rekstrartapi á þessu ári en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið.

Innherji
Fréttamynd

Mynda­taka í lágloftunum vekur at­hygli

Tvær þotur sem flogið hefur verið yfir Suðurlandi í dag hafa vakið töluverða athygli íbúa. Flugvélunum var flogið tiltölulega lágt og virtust þær mjög nálægt hvorri annarri. Síðustu daga hefur þeim verið flogið víða um land.

Innlent
Fréttamynd

SAS fellir niður allt flug til Græn­lands

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur óvænt fellt niður alla flugáætlun sína í sumar milli Danmerkur og Grænlands. Félagið segir ástæðurnar vera hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn.

Erlent
Fréttamynd

Fleiri ferðir felldar niður og ekkert sam­komu­lag í sjón­máli

Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn.

Innlent
Fréttamynd

Fluglistir sýndar yfir Reykja­víkur­flug­velli

Flugveislu er lofað á árlegri flugsýningu Flugmálafélags Íslands sem fram fer á Reykjavíkurflugvelli eftir hádegi í dag, laugardag. Fjölbreytt úrval loftfara af öllum stærðum og gerðum verður til sýnis, bæði á flugi og á jörðu niðri á sýningarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Á­kvörðun um næsta fund tekin yfir helgina

Fundi samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara lauk í dag án þess að boðað væri til nýs fundar. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara verður ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sendir flug­mönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“

„Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Við­ræður þokast lítið á­fram þrátt fyrir í­trekaða fundi

Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag.

Innlent
Fréttamynd

Tangar­hald á líf­æð sam­fé­lagsins

Deila Icelandair og flugmanna hefur ekki farið framhjá neinum. Hún snýst ekki aðeins um kjör flugmanna heldur stærra álitaefni: hvort fámennur hópur eigi að geta haft tangarhald á einni mikilvægustu lífæð íslensks samfélags.

Skoðun
Fréttamynd

Flugrisi eignast allan flug­flota Air Atlanta

Forstjóri Flugfélagsins Atlanta og nýr stjórnarformaður, Baldvin Már Hermannsson, segir kaup stærsta fraktflugfélags heims á 49 prósenta hlut gefa Atlanta aukinn alþjóðlegan slagkraft. Félagið verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi og í meirihlutaeigu stjórnenda félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Helmingur Air At­lanta seldur úr landi

Lykilstjórnendur Air Atlanta, undir forystu forstjórans Baldvins M. Hermannssonar, hafa keypt meirihluta félagsins. Jafnframt hefur bandaríska félagið Atlas Air Worldwide bæst í eigendahópinn. Eftir viðskiptin eiga lykilstjórnendurnir 51 prósenta hlut en Atlas 49 prósenta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir vanda Icelandair djúp­stæðari en samningar flug­manna

Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, segir vandamál Icelandair ekki aðeins felast í núverandi samningum við flugmenn heldur í grunnrekstri félagsins, flóknum flugflota og skorti á skýrri stefnu. Hann telur að félagið þurfi að einfalda reksturinn, selja einingar utan kjarnastarfsemi og nota andvirðið til að endurnýja flugflotann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fundi frestað til morguns

Fundi hjá Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur verið frestað til klukkan tíu í fyrramálið. Deilan virðist í nokkrum hnút og viðræður þokast lítið áfram að sögn sáttasemjara.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þögull sem gröfin

Ríkissáttasemjari er þögull sem gröfinn um framhaldið í dag þegar fulltrúar flugmanna og Icelandair funda vegna kjarasamningsviðræðna. Hann vill ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri Ís­lands­sjóða segir flug­menn taka Icelandair „í gíslingu“

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins.

Innherji
Fréttamynd

Flugöryggismál að Reykja­vík nýtist sem varavöllur Airbus

Icelandair hefur beðið í nærri tvö ár eftir því að fá samþykki flugmálayfirvalda fyrir því að nota Reykjavík sem varavöll fyrir nýjar Airbus-þotur félagsins. Í síðustu viku neyddist félagið til að skrá Glasgow sem varavöll fyrir Airbus sem þýddi að þotan þurfti að bera fjórum tonnum meira af eldsneyti yfir hafið.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair og flug­menn komnir í fjölmiðla­bann

Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Ríkissáttasemjari segir enn langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.

Innlent