Jeppar og jepplingar leysa af sportbíla Finnur Thorlacius skrifar 11. nóvember 2014 15:26 BMW Z4.
Markaðurinn fyrir sportbíla er nærri helmingur af því sem hann var fyrir efnahagskreppuna. Þetta segja forsvarsmenn BMW og telja að jafnvel aldrei muni vinsældir þeirra ná sömu hæðum. Ástæðuna segja þeir hinsvegar vera þá að kaupendur hafi snúið sér að dýrari jepplingum og jeppum. BMW ætlar þó áfram að leggja sig fram við smíði sportbíla og telur að sú ímynd sem því fylgi sé afar mikilvæg fyrirtækinu. Til að lækka kostnað við smíði þessháttar bíla hefur BMW hinsvegar leitað samstarfs við Toyota og sameinast fyrirtækin tvö nú um þróun miðstærðar sportbíls. Á það helst við um undirvagn en víst má telja að yfirbyggingar bílsins verði ólíkar. Með þessu tekur BMW ákveðna áhættu með ímynd sína en telur í senn annað óráð hvað kostnað varðar. Sala sportbíla eins og Mercedes Benz SLK og Audi TT er aðeins að rétta úr kútnum eftir lægð kreppunnar og hjálpar aukin sala slíkra bíla í Kína einnig uppá. Samanlögð sala SLK, TT og BMW Z4 náði hámarki árið 2007 með sölu 114.000 bíla, en hafði minnkað um 45% árið 2010. Spáð er 72.000 bíla samtals sölu þeirra við enda þessa áratugar svo eitthvað er þetta uppávið þó svo tölum ársins 2007 verði seint náð. Hinsvegar verður ekki litið framhjá því að mun fleiri bílgerðir dýrra lúxusbíla hafa komið fram undanfarin ár, aðallega jepplingar og jeppar, sem keppa við sportbílana um hylli þeirra sem efni hafa á dýrari bílum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent