Runka sér einu sinni á dag Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 15. desember 2014 20:00 vísir/getty
Rachel Hills, blaðakona tímaritsins Cosmopolitan, talaði við fjóra karlmenn á þrítugsaldri um sjálfsfróun. Viðtalið birtir hún á vefsíðu tímaritsins en karlmennirnir koma ekki fram undir nafni. Eru þeir á aldrinum 24 ára til 29 ára. Karlmennirnir eru meðal annars spurðir hve oft þeir runka sér á dag. „Yfirleitt einu sinni á dag nema þegar ég er að ferðast með öðrum eða eitthvað annað er í gangi. Oftar en einu sinni á dag ef ég er lengi einn og niðurlútur,“ segir maður A. „Að meðaltali einu sinni á dag,“ bætir maður B við. Maður C segist yfirleitt runka sér tvisvar á dag og maður D runkar sér fjórum sinnum á dag núna þar sem hann er í sambandi þar sem barist er um völdin og nú má hann ekki fá fullnægingu. Mismunandi er hvar þeir runka sér. „Vanalega við skrifborðið mitt eða í rúminu mínu,“ segir maður D og maður C bætir við: „Heima, yfirleitt fyrir svefn eða lúr.“ Maður B er kvæntur en menn C og D eru í sambandi. Maður A er einhleypur. Þeir segja maka sína vita af sjálfsfróunarmynstrinu. „Maki minn veit af mínum sjálfsfróunarvenjum og ég veit af hennar,“ segir maður C. Hann segist runka sér jafnmikið þegar hann er einhleypur og þegar hann er í sambandi. Hann segist oftast hugsa um maka sinn þegar hann runkar sér. Maður B hugsar stundum um klám. Þeir byrjuðu allir að stunda sjálfsfróun um 10 eða 11 ára aldurinn. Þeir geta ekki dæmt um hvort sé betra – sjálfsfróun eða kynlíf. „Þetta er tvennt ólíkt. Mér finnst kynlíf betra en þetta hefur bæði kosti og galla,“ segir maður B.Viðtalið við mennina fjóra má lesa í heild sinni á vef Cosmopolitan.
Mest lesið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf