Tíska og hönnun

Íslenskur fatahönnuður í Salt & Vinegar Magazine.

Marín Manda skrifar
Ásgrímur Már Friðriksson
Ásgrímur Már Friðriksson Vísir/ Vilhelm
„Þetta er útskriftarlínan mín frá síðasta vori úr Listaháskólanum en tvisvar á ári fara nokkrir sérvaldir nemendur úr skólanum til Kaupmannhafnar og sýna á tískuvikunni. Þá taka nemendurnir þátt í hönnunarkeppni á vegum Designers Nest ásamt nemendum frá ellefu skólum á Norðurlöndunum. Þar vaknaði einhver áhugi á línunni minni hjá aðilum frá Salt & Vinegar Magazine,“ segir Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður þegar hann er spurður út í íslenska tískuþáttinn sem birtist í skoska tískutímaritinu Salt & Vinegar Magazine í vikunni.

Flíkurnar vöktu athygli fyrir að vera allar hvítar. „Ég vissi að mig langaði að vinna með hvíta litinn því hann táknar nýtt upphaf og ég var með eins konar endurfæðingarhugmyndir því ég er örlítið „Sci fi“-nörd í mér,“ segir hann hlæjandi. Ásgrímur segist hafa skoðað myndir af albínóum, og þá sérstaklega dýrum, og notað sem innblástur ásamt því að blanda saman hvítum tónum úr alls konar efnum.

„Ég bætti inn í línuna vafin hálmstrá til að hafa einhvers konar andstæður svo að línan yrði ekki of hrein og vélræn.“ Ásgrímur Már stefnir á að gera nýja fatalínu með haustinu en hann deilir lokaðri vinnustofu með sjö öðrum upprennandi hönnuðum í miðbænum. Hægt er að skoða hönnun hans nánar á asiceland.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.