Lífið

Maltesers-kaka - UPPSKRIFT

Ekki væri verra að gleðja ástina sína með þessari köku um helgina.
F07210214 maltesers
Ekki væri verra að gleðja ástina sína með þessari köku um helgina. F07210214 maltesers Mynd/Berglin Hreiðarsdóttir
Berglind Hreiðarsdóttir heldur úti matarblogginu Gotterí og gersemar. Þar er að finna ýmsar uppskriftir sem eru sætar undir tönn og deilir Berglind uppskrift að ljúffengri köku með lesendum Vísis.

„Þessi skreyting með súkkulaðihjúp og Maltesers kemur einstaklega vel út og er bæði augnayndi og algjört góðgæti,” segir Berglind.

Maltesers-kaka

Kaka

1 bolli púðursykur

¾ bolli mjólk

125 g smjör

1¼ bolli hveiti

1½ tsk. lyftiduft

½ tsk. salt

½ bolli bökunarkakó

3 egg

Súkkulaðihjúpur

300 g saxað suðusúkkulaði

½ bolli rjómi

30 g smjör

Krem

185 g smjör við stofuhita

2¼ bolli flórsykur

1 msk. mjólk

2 msk. súkkulaðihjúpur (uppskrift hér að ofan)

Skraut

Maltesers (um 500 g)

Aðferð – kaka

Hitið ofninn 160 gráður og smyrjið um 20 cm kökuform með smjöri. Setjið smjörpappír í botninn og hliðarnar.

Setjið púðursykur, mjólk og smjör í pott og hitið á miðlungshita í nokkrar mínútur þar til blandan er slétt og fín, setjið í hrærivélarskálina.

Blandið hveiti, lyftidufti, salti og bökunarkakói varlega saman við og skafið niður á milli.

Setjið eggin út í, eitt í einu og blandið vel.

Hellið í kökuformið og bakið í um 55 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna miðja kemur hreinn út.

Aðferð – súkkulaðihjúpur

Setjið súkkulaði, rjóma og smjör í skál og bræðið yfir vatnsbaði, hrærið mjög reglulega í blöndunni þar til hún verður jöfn og fín. Geymið við stofuhita í um 1-1,5 klst. þar til hjúpurinn verður þykkur og glansandi.

Aðferð – krem

Setjið smjörið í hrærivélarskálina og þeytið þar til létt og ljóst. Bætið þá flórsykri og mjólk út í og þeytið áfram þar til blandan verður létt í sér. Bætið 2 msk. af súkkulaðihjúpnum út í kremið.

Samsetning

Skerið kökuna í 4 lög með kökuskera/hníf/tvinna.

Smyrjið kreminu jafnt á milli botnanna og reynið að fylla jafnt út á kantana svo kakan verði slétt og fín að utan (ekki er nauðsynlegt að setja krem ofaná eða alveg á hliðarnar)

Kælið kökuna í um klukkustund.

Setjið hjúpinn, sem hefur þykknað og fengið á sig glansandi yfirbragð, á kökuna.

Raðið Maltesers-kúlum þétt yfir alla kökuna. Gott er að notast við einnota gúmmíhanska því annars koma „fingraför“ í kúlurnar. Ef hjúpurinn storknar of hratt til þess að kúlurnar festist við hann er hægt að dýfa hverri kúlu í smá afgangshjúp/bráðið súkkulaði og festa hana þannig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.