„Ég hef alltaf verið að gera eitthvað í höndunum og þegar ég var yngri fannst mér gaman að föndra og mála. Bakstursáhuginn kviknaði svo í kringum eins árs afmæli sonar míns sem er að verða fimm ára. Þá gerði ég mína fyrstu sykurmassaköku og eftir það var ekki aftur snúið. Ég fór að setja inn myndir af kökunum mínum á Facebook og var í kjölfarið hvött til að gera sérstaka síðu í kringum þær sem ber einfaldlega nafnið Kökurnar hennar Siggu. Í dag er þetta mitt helsta áhugamál.

Sigríður hefur keypt ýmis áhöld, matarliti og skraut í versluninni Allt í köku en annað fæst í hefðbundnum matvöruverslunum.
Hún er persónulega hrifnari af marsípan- en sykurmassakökum. „Það er hins vegar gott að vinna með sykurmassann og því nota ég hann oft í skraut.“
Hér gefur Sigríður uppskrift að uppáhalds veislukökunni sinni. Hún er hjúpuð og skreytt með marsípani og sérstaklega bragðgóð.

Botnar (Uppskriftin passar í 30x20 cm form. Til að fá ofnskúffustærð þarf að tvöfalda.)
9 egg
300 g sykur
300 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
Þeytið egg og sykur saman þar til létt og ljóst. Sigtið hveiti og lyftiduft saman við í nokkrum skömmtum og hrærið rólega saman við eggjablönduna. Smyrjið form í stærðinni 30x20 cm og hellið deiginu í þrjú slík form. Bakið við 180°C í um það bil 15 mínútur.
Jarðarberjasúkkulaðirjómi
4 dl rjómi
4 blöð matarlím
320 g jarðarber í dós (ein stór dós)
150 g súkkulaðispænir
Leggið matarlímið í bleyti, bræðið það yfir vatnsbaði og kælið aðeins. Sigtið jarðarberin frá vökvanum í dósinni en passið að geyma vökvann. Skerið jarðarberin smátt og blandið saman við þeyttan rjómann ásamt súkkulaðispónum. Hrærið matarlímið saman við rjómablönduna þegar það hefur kólnað og látið stífna í kæli.
Makkarónur og jarðarberjarjómi
250 g makkarónur (1 poki)
1 dl safi af jarðarberjunum
2,5 dl rjómi
2 msk. jello-jarðarberjaduft
Myljið makkarónurnar niður í mylsnu og blandið jarðarberjasafanum saman við. Þeytið saman rjóma og jello-duft í annarri skál.
Annað
3 dl rjómi (til að þekja kökuna áður en marsípanið fer yfir hana).
1 kg marsípan, dugar bæði til að þekja kökuna og í skrautið.
Setjið einn botn á kökudisk og vætið hann aðeins með smá jarðarberjasafa, smyrjið svo makkarónunum yfir botninn og setjið jello-jarðarberjarjómann yfir það. Setjið næsta botn ofan á. Vætið hann einnig með smá jarðarberjasafa. Dreifið svo jarðarberjasúkkulaðirjóma yfir. Að lokum er þriðji og síðasti botninn settur yfir. Vætið hann líka með jarðarberjasafa. Þekið svo alla kökuna með þeyttum rjóma. Fletjið út marsípan og þekið kökuna með því. Gott er að nota silíkonmottu undir. Skreytið að vild.