Þetta er í tíunda skiptið sem Borgfirðingar slá upp tónlistarhátíð í gömlu síldarbræðslunni á Borgarfirði og því verður hátíðin í sumar sérlega vegleg. Eftirtalið tónlistarfólk kemur fram á hátíðinni í ár: Drangar, Emilíana Torrini, Lára Rúnars, Mammút, Pollapönk og SúEllen.
„Við höfum oft haft erlenda tónlistarmenn á hátíðinni eins og Damien Rice og John Grant, en fyrst Emilíana Torrini kom heim aftur ákváðum við vera ekki að sækja vatnið yfir lækinn,“ segir Magni, sem er sérstaklega ánægður yfir því að Emilíana Torrini snýr nú aftur til Borgarfjarðar.
Emilíana varði einmitt hluta af æsku sinni á Borgarfirði og kom fram á fyrstu Bræðslutónleikunum 2005 og einnig á Bræðslunni 2006. Fleiri góðkunningjar Bræðslunnar snúa aftur, meðlimir Dranga, þeir Jónas Sigurðsson, Mugison og Ómar Guðjónsson, hafa allir komið fram áður á Bræðslunni, auk þess sem þeir unnu hluta af sinni fyrstu plötu á Borgarfirði.
„Lára Rúnarsdóttir og meðlimir hennar hljómsveitar sigldi einmitt með þeim Dröngum í kringum landið á Húna II á síðasta ári, meðal annars með viðkomu á Borgarfirði, en þetta verður í fyrsta skiptið sem Lára kemur fram í Bræðslunni,“ bætir Magni við.

Önnur hljómsveit sem mun koma fram í fyrsta skiptið á Borgarfirði er þó heldur eldri í hettunni, en það eru Austfirðingarnir í SúEllen. Þrátt fyrir að hafa spilað saman í hartnær þrjá áratugi hefur sveitin aldrei komið fram fullskipuð á Borgarfirði.
„Síðast en ekki síst skal svo nefna fulltrúa okkar Íslendinga í Evrovision þetta árið, Pollapönk. Þeir munu koma með sinn góða boðskap um enga fordóma í Borgarfjörðinn.“
Miðasala á hátíðina hefst á miði.is þann 6. maí kl 10.00. „Á síðasta ári seldust miðar í Bræðsluna upp á 60 klukkustundum og því rétt að hafa hraðann á til að tryggja sér miða,“ bætir Magni við léttur í lundu en einungis 800 miðar eru í boði.