Tíska og hönnun

Þessar konur gera jakkaföt töff

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Það virðist vera í tísku hjá frægustu konum heims að klæða sig í jakkaföt á tyllidögum.

Leikkonan Ellen Page mætti á frumsýningu X-Men: Days of Future Past í New York í smókingjakka með mjótt bindi og vakti mikla athygli fyrir þetta skemmtilega lúkk.

Söngkonan Rita Ora fór í klassískum jakkafötum á næturklúbb í London og leikkonan Ellen Barkin bauð upp á fágað dress í teiti í MOMA, nútímalistasafninu í New York.

Jakkaföt fyrir konur komast alltaf reglulega í tísku og nú virðist vera tíminn til að dressa sig upp í ein slík.

Rita Ora
Ellen Barkin
Ellen Page





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.