Skólakór Varmárskóla var stofnaður árið 1979. Í honum eru oftast 60 til 70 börn og unglingar í þremur aldursskiptum deildum.
Nú ætlar hann að halda afmælistónleika í Guðríðarkirkju á morgun, sunnudag, klukkan 16, þar taka fyrrverandi kórfélagar þátt bæði með einsöng og kórsöng, því margir þeirra hafa lagt fyrir sig söng eftir að þeir hættu í skólakórnum.
Guðmundur Ómar Óskarsson hefur stjórnað kórnum frá upphafi, eða í 35 ár. „Þetta er dágóður tími,“ segir hann. „Þó ég falli auðvitað alveg í skuggann af Jóni Stefánssyni sem er búinn að stjórna Langholtskórnum í 50 ár!“
Spurður hvort kórinn hafi tekið miklum breytingum í áranna rás svarar Guðmundur Ómar.
„Aðal breytingin varð fyrir 18 árum. Þá var gagnfræðadeildin sér og krakkarnir höfðu fram að því tollað illa í kórnum eftir að þeir komu þangað. En 1996 voru áhugasamar stelpur að fara úr yngri deildinni og tókst að smala sextán stelpum í gagnfræðaskólanum saman þannig að til varð unglingadeild kórsins sem hefur verið við lýði síðan. Árið eftir stofnun hennar fórum við í söngferð til Danmerkur og gekk rosalega vel.“
Hann bætir við að kórinn hafi farið í söngferðir bæði innanlands og utan og komi fram að jafnaði 25 til 30 sinnum á ári.
Hvernig skyldi svo ganga að halda strákum í kórnum?
„Þeir hafa verið fremur latir að taka þátt í starfinu, nema þá í yngstu deildinni. Nokkrir hafa þó sýnt tryggð og einn þeirra syngur með okkur einsöng núna á tónleikunum, Karl Már Lárusson.
Um tuttugu aðrir fyrrverandi kórfélagar taka þátt líka og Hrönn Helgadóttir, sem sér um píanóleik á tónleikunum, söng með kórnum á sínum tíma. Þetta verður stór hópur og heilmikið í afmælistónleikana lagt.“

