Tíska og hönnun

Frumsýnir nýja línu frá Adidas

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Rita Ora er afar góð í að blanda götutísku við hátísku eins og sést á Instagram-síðu hennar. Það kom því fáum á óvart þegar það var tilkynnt í október að hún væri komin í samstarf við íþróttavörurisann Adidas um að hanna glænýja línu.

Rita birti mynd af fyrstu flíkinni í línunni á Instagram-síðu sinni í vikunni en það er blómlegur Adidas-jakki.

„Þetta er fyrsta línan mín fyrir Adidas!!! Já loksins! Ég og teymið mitt erum búin að vinna svo mikið að því að gera bestu, kynþokkafyllstu, svölustu íþróttavörulínu sem völ er á,“ skrifar Rita við myndina.

Rita er fyrsta tónlistarkonan sem vinnur með Adidas en aðrar stjörnur hafa hannað línur fyrir íþróttamerki, þar á meðal Stella McCartney og David Beckham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.