Veiðileyfatekjur í urriðarannsóknir Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. maí 2014 07:00 Þingvallaurriðinn stendur undir rannsóknum á sjálfum sér. Fréttablaðið/Garðar
Orkuveita Reykjavíkur ætlar að láta tekjur af veiðirétti í Þingvallavatni renna til rannsókna á urriðastofninum í vatninu. „Eftir að auglýst var eftir tilboðum í veiðiréttinn og hann leigður hæstbjóðanda jukust tekjur Orkuveitunnar af honum verulega og nema nú tæpum tveimur milljónum króna á ári,“ segir í frétt OR. „Hugur stjórnar Orkuveitunnar stendur til þess að það muni einkum nýtast til frekari rannsókna á hinum merka urriðastofni í vatninu.“Tilkynning Orkveitunnar„Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að efla rannsóknir á urriðastofninum í Þingvallavatni með því að láta allar tekjur fyrirtækisins af veiðirétti í vatninu renna til slíkra rannsókna. Tekjurnar nema nú tæpum tveimur milljónum króna á ári.Orkuveitan hefur staðið að margvíslegum rannsóknum á lífríki Þingvallavatns og vöktun þess einkum eftir að heitavatnsframleiðsla hófst á Nesjavöllum árið 1990. Rannsóknirnar hafa einkum beinst að áhrifum jarðhitanýtingarinnar á vistkerfi vatnsins.Nú um nokkurra ára skeið hafa nokkrir hagsmunaaðilar haft með sér formlegt samstarf um vöktun vatnsins. Hita og þunga samstarfsins bera Orkuveitan og Landsvirkjun, sem rekur vatnsaflsvirkjanir í Soginu. Aðild Umhverfisstofnunar og Þjóðgarðsins á Þingvöllum að samstarfinu er einnig afar mikilvæg. Vísindafólk á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs hefur átt drýgstan þátt í rannsóknunum sjálfum síðustu ár en einnig Matvís auk sjálfstætt starfandi vísindafólks. Rannsóknirnar hafa varpað skýrara ljósi á ýmsa áhrifaþætti lífríkisins í vatninu, náttúrulegra breytinga og breytinga af mannavöldum.Þegar keyptar voru jarðir í Grafningi til jarðhitanýtingar fylgdi þeim veiðiréttur í vatninu. Eftir að auglýst var eftir tilboðum í veiðiréttinn og hann leigður hæstbjóðanda jukust tekjur Orkuveitunnar af honum verulega og nema nú tæpum tveimur milljónum króna á ári. Markmið þessa var ekki síður að bæta umgengni um veiðistofnana í vatninu og veiðistaðina við það, en henni var ábótavant.Nú hefur verið ákveðið að þessar tekjur renni óskiptar til frekari rannsókna. Lætur nærri að framlag Orkuveitunnar til þeirra tvöfaldist við þetta. Fénu verður ráðstafað að höfðu samráði við samstarfsaðila um vöktun Þingvallavatns en hugur stjórnar Orkuveitunnar stendur til þess það muni einkum nýtast til frekari rannsókna á hinum merka urriðastofni í vatninu, sem þykir einstakur.“
Stangveiði Mest lesið Hítarvatn komið í gang Veiði Of hraðar skiptingar í Elliðaánum Veiði Arnarvatnsheiði er gefa flotta silunga Veiði Svona stækkar þú fiskinn á mynd Veiði Fín sjóbleikjuveiði í Hraunsfirði Veiði Laxinn mættur í Elliðaárnar Veiði Hreinsunardagur í Elliðaánum á laugardaginn Veiði Laxárdalurinn sýnir sínar bestu hliðar Veiði 99 sm lax í Elliðaánum Veiði 101 sm lax úr Eystri Rangá Veiði