Tíska og hönnun

Cara er að leita að þér

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Cara leitar að venjulegum stúlkum í fyrirsætuhlutverkið.
Cara leitar að venjulegum stúlkum í fyrirsætuhlutverkið.
Fyrirsætan Cara Delevingne lét mynd á Instagram í vikunni þar sem hún tilkynnti að hún væri að fara að hanna nýja línu fyrir tískurisann Donnu Karan.

Cara hannar fimmtán flíkur fyrir merkið og kemur línan í verslanir í nóvember. Má búast við því að línan endurspegli stíl fyrirsætunnar sem er afar afslappaður.

Stuttu eftir að Cara tilkynnti þetta á Instagram setti hún mynd af sér haldandi á skilti sem á stóð: #CaraWantsYou eða #CaraVillÞig. Hún vill nefnilega fá venjulegar stúlkur til að sýna línuna sína og geta þeir sem hafa áhuga á að sitja fyrir fyrir Cöru sett sína bestu selfie-mynd á Instagram með kassmerkjunum #CaraWantsYou og #Cara4DKNY. En þið verðið að hafa hraðar hendur því umsóknarfresturinn rennur út í lok mánudags.

Lína Cöru kemur í verslanir í nóvember.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.