Gagnrýni

The Roommates (Gudda - An Epic Tale)

Sigríður Jónsdóttir skrifar
Sambúðin var augsýnilega ekki hin auðveldasta en einstaklega frjó á köflum ... segir í dómnum.
Sambúðin var augsýnilega ekki hin auðveldasta en einstaklega frjó á köflum ... segir í dómnum. Fréttablaðið/Valli
Leiksýningin Gudda frumsýnt í Smiðjunni, Sölvhólsgötu, 28. ágúst á leiklistarhátíðinni Lókal

Þátttakendur: Vala Höskuldsdóttir, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir og Eva Rún Snorradóttir



Guðbjörg (Gudda) og Vala leigðu íbúð á Bárugötunni í vesturbæ Reykjavíkur ásamt eiginkonu Völu frá 2012 til 2014.

Sambúðin var augsýnilega ekki hin auðveldasta en einstaklega frjó á köflum og frekar súrrealísk ef marka má afraksturinn sem hægt er að sjá á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal um þessar mundir.

Lókal er vettvangur sviðslistatilrauna og þar á Gudda vel heima. Verkið er hvort tveggja tilraun með sviðslistaformið og tilraun til þess að hjálpa Guddu að veita orku sinni í skapandi farveg án þess að fulkomnunarárátta hennar taki öll völd. Vala setur henni markmið byggð á lífi Guddu sem hún síðan framkvæmir innan skýrra tímamarka.

Sviðsetningin er fábrotin í fyrstu en springur síðan út eins og pottablóm þegar líður á sýninguna, í góðum takt við uppbrot á sýningunni sem þróast í óvænta og einlæga átt í seinni helmingnum.

Áhrifamestu atriðin eiga sér stað þegar Gudda sjálf fær lausan tauminn til að vera hún sjálf, leika sér og sýna sína innri manneskju, eða í sumum tilfellum heilt þorp af persónum sem búa innra með henni.

Sérstaklega eftirminnilegt er atriði þar sem þær gefa áhorfendum magnaða og átakanlega innsýn í hinn gráa heim þunglyndis.

Einnig er frábært augnablik þar sem Gudda leikur á sinn einstaka hátt Lé konung, Macbeth, lafði Macbeth og Thisbe úr Draumur á Jónsmessunótt í einni hendingu, á sjö mínútum.

Þrátt fyrir að samband meðleigjendanna sé grunnurinn að verkinu er ekki kafað nógu djúpt í samband þeirra heldur er fókusinn aðallega á Guddu sjálfri.

Stilla þarf sýninguna betur af og fá rödd Völu, sem er líka með virkilega skemmtilega nærveru, meira inn í sýninguna og skerpa innri ramma verksins sem birtist á mjög fallegan hátt undir lokin sem falleg vinátta með öllum sínum blæbrigðum.

(Sýningin fer fram að mestu á ensku).



Sigríður Jónsdóttir



Niðurstaða: Áhugaverð sviðslistatilraun sem hittir reglulega beint í hjartastað en þyrfti skýrari driffjöður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.