Gagnrýni

Stríðið stóð undir væntingum

Freyr Bjarnason skrifar
The War On Drugs

Vodafonehöllin

Iceland Airwaves



Bandarísku indírokkararnir í The War On Drugs hafa hlotið mikið lof fyrir sína þriðju plötu, Lost in the Dream, sem kom út í vor.

Sannarlega prýðileg plata sem rennur ljúft í gegnum hlustirnar og því var eftirvæntingin mikil að berja hljómsveitina augum á undan The Flaming Lips. Skemmst er frá því að segja að tónlistin olli engum vonbrigðum og hljómaði meira að segja enn betur á sviði en á plötunni.

Þetta voru síðustu tónleikar The War On Drugs á löngu tónleikaferðalagi og greinilegt að hún var búin að spila sig vel saman. Þéttleikinn var mikill með forsprakkann Adam Granduciel í góðu formi. Gítarleikur hans var sérstaklega góður og þegar hann fór á flug í sólóunum var hrein unun á að hlusta.

Stundum minnti The War On Drugs á tónlistarmanninn Kurt Vile sem spilaði með hljómsveit sinni á hátíðinni All Tomorrows Parties á gamla varnarsvæðinu í sumar. Ekki að ástæðulausu því Granduciel var áður meðlimur í Kurt Vile & The Violators, nema hvað tónlist The War On Drugs er enn betri en sú sem kemur úr sarpi fyrrverandi liðsfélaga hans.

Niðurstaða: Vel heppnað gigg hjá The War On Drugs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.