Bítill stjórnaði Sinfóníunni Jónas Sen skrifar 29. nóvember 2014 12:00 „Bryndís Halla Gylfadóttir lék einleikinn. Hún gerði það af stakri snilld. Tónarnir voru tærir og nákvæmir, túlkunin þrungin andakt.“ Vísir/Vilhelm
Tónlist: Verk eftir Mendelssohn, John Speight og Vaughan-Williams Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Israel Yinon. Einleikari: Bryndís Halla Gylfadóttir Tónleikar í Hörpu fimmtudaginn 27. nóvember. Hann var dálítið sérstakur, hljómsveitarstjórinn á sinfóníutónleikunum á fimmtudagskvöldið, Israel Yinon. Ekki aðeins var hann með bítlahárgreiðslu og leit út eins og Eiríkur Fjalar, hann stjórnaði sinfóníunni eins og hún væri popphljómsveit. Að vísu var hann sæmilega penn fyrir hlé, en þegar fjórða sinfónían eftir Vaughan-Williams byrjaði héldu honum engin bönd. Hann var svo fjörugur. Vaughan-Williams samdi fjórðu sinfóníuna árið 1935. Hann hafði verið þekktur fyrir virðulega, lagræna og fremur hefðbundna tónlist. En með fjórðu sinfóníunni reri hann á ný mið. Sinfónían var full af ómstríðum hljómum og framúrstefnulegum melódíum. Hún þótti svo djörf að fólk var alveg gáttað. Vaughan-Williams var eins og stabíll og farsæll flugmaður sem var skyndilega tekinn upp á því að fljúga undir símalínur. Flutningurinn á tónleikunum nú var afar líflegur í meðförum hins dansandi stjórnanda. Hljómsveitin spilaði vel, leikurinn var nákvæmur og samtaka. Mismunandi hljóðfærahópar voru pottþéttir og öruggir á sínu. Túlkunin var sannfærandi, hnitmiðuð og með magnaðri stígandi. Á tónleikunum voru tvö önnur verk á efnisskránni. Annað var Fingalshellir, forleikur op. 26 eftir Mendelssohn. Hann kom prýðilega út. Hitt var nýr einleikskonsert fyrir selló eftir John Speight, sem hér hefur verið búsettur um árabil. Konsertinn var stórglæsilegur. Hann var ábúðarfullur og dálítið drungalegur, en ákaflega fallega samsettur. Á vissan hátt var tónlistin eins og smásagnasafn. Hún samanstóð af litlum einingum sem virtust óskyldar. Samt var hún ekki ósamstæð. Þvert á móti var framvindan eðlileg og áreynslulaus. Tónlistin kom stöðugt á óvart, manni leiddist ekki baun. Sellóið var ávallt í forgrunninum. Það drukknaði aldrei í hljómsveitarleiknum, nema kannski í upphafi þegar slagverkið var heldur hávært. Bryndís Halla Gylfadóttir lék einleikinn. Hún gerði það af stakri snilld. Tónarnir voru tærir og nákvæmir, túlkunin þrungin andakt. Þetta var mögnuð upplifun. Niðurstaða: Tilkomumikil sinfónía eftir Vaughan-Williams var flott, nýr sellókonsert eftir John Speight var aðdáunarverður.
Gagnrýni Menning Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira