Hamingjan var það heillin Rikka skrifar 12. desember 2014 09:00 visir/getty
Flest okkar eigum þá ósk og markmið að verða hamingjusöm. Oft á tíðum ætlumst við til þess að hamingjan banki upp á hjá okkur, komi sem holdgervingur makans, barnanna eða einhvers annars sem bíður okkar í framtíðinni eða jafnvel eitthvað sem við skildum eftir í fortíðinni. Í tengslum við hamingjuna er vert að minnast svars sem John Lennon heitinn gaf kennurunum sínum þegar hann var barn. Spurningin var einföld: „Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór?“ Spurning sem við fullorðna fólkið leggjum endrum og eins fyrir börn enda koma oftar en ekki skemmtileg og fjölbreytileg svör. Mörg börn vilja verða slökkviliðsmenn, ofurhetjur, hárgreiðslufólk og svo mætti lengi telja. Svarið sem Lennon gaf kennurunum sínum var alveg jafngilt og svör annarra barna, hann sagðist ætla að vera hamingjusamur þegar hann yrði stór. Kennararnir undruðust þetta svar barnsins og sögðu hann misskilja spurninguna en hann svaraði á móti að þeir misskildu lífið. Hamingjan er nefnilega ekki svo flókin né fjarlæg. Hamingjan er í okkur öllum, hún er ákvörðun sem hvert og eitt okkar verður að taka. Byrjaðu hvern morgun á því að ákveða að dagurinn í dag færi þér hamingju og gleði. Hlustaðu á tónlist sem fær þig til að brosa. Umkringdu þig fólki sem er jákvætt og hláturmilt. Staldraðu við og finndu áferðina og bragðið af kaffinu, finndu ilminn af sturtusápunni. Það er talað um að það taki 21 dag að búa til nýjar venjur. Prófaðu að ákveða það næstu þrjár vikurnar að hafa dag hvern hamingju og gleði í fyrirrúmi. Hafðu þakklætið líka með í för og skrifaðu hjá þér eitthvað þrennt sem þú getur þakkað fyrir á hverjum degi. Gerðu þetta áður en þú ferð að sofa og fylgstu með hvernig lífið verður sífellt bjartara og hamingjuríkara.
Heilsa Mest lesið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Veikindafríi Páls Óskars lokið Lífið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Lífið Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Chili Con Carne er hinn fullkomni haustréttur Matur
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp