Tilraunameðferð gegn ebólu hafin Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. janúar 2015 07:00 vísir/afp
Vísindamenn við Háskólann í Oxford telja sig hafa fundið lækningu við ebóluveirunni sem nú geisar í Vestur-Afríku. Um er að ræða tilraunalyfið Brincidofovir sem hingað til hefur einungis verið prófað á örfáum einstaklingum, en talið er lofa góðu. Það eru samtökin Læknar án landamæra sem halda utan um verkefnið og verður lyfið í fyrstu prófað á hundrað og fjörutíu einstaklingum í Líberíu. Verkefnið er það fyrsta af þremur sem hleypt verður af stokkunum í ár, en hingað til hefur fólki í Vestur-Afríku ekki staðið til boða að taka þátt í slíkum tilraunaverkefnum. Lyfið hefur verið prófað á nokkrum einstaklingum, meðal annars á Bandaríkjamanninum Thomas Eric Duncan, en hann lést í október síðastliðnum. Lyfið reyndist kvikmyndatökumanninum Ashoka Mukpo þó eilítið betur. Hann smitaðist í Líberíu í október og er við fulla heilsu í dag. Vísindamenn segja því ómögulegt að segja til um hvort lyfið í raun og veru virki, en binda vonir við að svo sé. Búið sé að þróa lyfið enn frekar og segja það lofa góðu. Niðurstaðna úr rannsóknunum er að vænta í febrúar á næsta ári. Nú hafa hátt í átta þúsund orðið faraldrinum að bráð og um tuttugu þúsund eru sýktir.
Ebóla Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira