Segjast bara vera vinir Kjartan Atli Kjartansson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 19. janúar 2015 22:53 Dóra María Lárusdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og sjónvarpsstjarnan Auðunn Blöndal eru glæsilegt fólk. Vísir/Óskar/Arnþór
Dóra María Lárusdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og sjónvarpsstjarnan Auðunn Blöndal eru byrjuð að slá sér upp saman og veltir fólk fyrir sér hvort úr verði eitt glæsilegasta par landsins en þau hafa verið að hittast undanfarna mánuði. Reykjavíkurmærin Dóra María verður þrítug í sumar en Auðunn, sem á ættir sínar að rekja á Sauðárkrók, verður 35 ára á árinu.Uppfært klukkan 9:05Auðunn segir í samtali við Vísi ekkert hæft í því að þau Dóra María séu par. Þau séu einfaldlega góðir vinir. Dóra María hefur lengi verið einn eftirsóttasti kvenpeningur landsins og hefur ítrekað verið nefnd til sögunnar í liðnum „Hin hliðin“ á Fótbolti.net undanfarin ár þegar spurt er hver sé fallegasta knattspyrnukona landsins.Sjá einnig:Nýtt par Hún er ein landsleikjahæsta knattspyrnukona landsins með 118 leiki og 18 mörk þrátt fyrir að hún verði ekki þrítug fyrr en á árinu. Hún var meðal annars í aðalhlutverki er A-landslið Íslands í knattspyrnu tryggði sæti sitt á stórmóti í fyrsta skipti haustið 2008. Þá skoraði hún tvö mörk og lagði upp það þriðja í 3-0 sigri á Írlandi á Laugardalsvelli. Þá var hún í landsliði Íslands sem komst í átta liða úrslit EM í Svíþjóð sumarið 2013.Dóra María hefur lengst af ferilsins leikið með Val en einnig haft viðkomu í Svíþjóð og Brasilíu.Vísir/DaníelOrðrómur hefur verið uppi að Dóra María velti fyrir sér að leggja skóna á hilluna en Freyr Alexandersson, þjálfari landsliðs kvenna, sagði í viðtali við Fréttablaðið á dögunum að Dóra María lægi undir feldi. Íþróttadeild hefur ekki náð tali af knattspyrnukonunni hógværu undanfarnar vikur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Nóg er um að vera hjá Auðuni sem er kynnir í sjónvarpsþáttunum Ísland got Talent sem sýndir eru á Stöð 2. Hann sló fyrst í gegn í sjónvarpsþáttum á borð við 70 mínútur, Tekinn og Strákarnir.Þá var nýlega tilkynnt að framundan væri önnur þáttaröð af sjónvarpþáttunum Atvinnumennirnir okkar þar sem Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsmenn Íslands í knattspyrnu, verða meðal annarra sótt heim. Auðunn er í aðalhlutverki í þáttunum þar sem hann heimsækir margt af fremsta íþróttafólki okkar úti í heimi. Þá heldur hann úti vikulegum útvarpsþætti á FM957 sem ber heitið FM 95Blö þar sem meðal fastagesta eru Steindi Jr. og Gillzenegger. Hlusta má á nýjasta þáttinn hér að neðan.
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira