Eðlileg útferð er því gulleit, hvít eða glær þegar þornar í nærfatnaði.
Samkvæmt Doktor.is þá er útferð mjög algeng eða um 20% allra kvenna á barneignaaldri eru með útferð af einhverju tagi nær daglega. Það er erfitt að segja til um hvað er eðlilegt í þessu efni og hvenær útferð telst of mikil – lyktin og magnið eru mjög mismunandi og konur leggja misjafnt mat á það hvað þær telja vera of mikla útferð.
Ýmsir þættir geta haft áhrif á útferðina líkt og streita, meðganga, tíðahringur, mataræði, lyfjanotkun og kynferðisleg örvun.
Hvenær er útferð óeðlileg?
Útferð er talin óeðlileg þegar hún breytir um lit, verður t.d grænleit eða brúnleit, verður illa lyktandi og/eða þegar hún veldur óþægindum, kláða eða sársauka í leggöngum.
Óeðlileg útferð er oftast merki um einhvers konar sýkingu en það er mjög algengt að fá sýkingar.
Sýking getur komið til vegna munnmaka, samfara, röskun á bakteríuflóru legganga vegna sápuþvottar eða jafnvel mataræðis.
Það finna ekki allar konur fyrir óþægindum í tengslum við sýkingar.
Sveppasýking er ein af sýkingum sem hægt er að fá í leggöngin og getur það smitast á bólfélaga við óvarðar samfarir.

- Notaðu smokk við samfarir
- Haltu þér hraustri, borðaðu hollan mat, sofðu nóg og drekktu vel af vökva
- Haltu píkunni hreinni og þurri
- Vertu í nærfatnaði úr bómull
- Skeindu þér fram og svo aftur eftir þvaglát og hægðir (byrja á píkunni og skeina svo aftur í rass, aldrei byrja á rassi og skeina yfir í píkuna)
- Forðastu að nota dömubindi eða túrtappa með lyktarefnum
- Ekki nota olíur eða vaselín sem sleipiefni
- Ekki skola leggöngin með vatni
- Fylgdu leiðbeiningum lyfja
- Forðastu samfarir á meðan á lyfjum stendur og þar til þú er einkennalaus
- Ekki klóra þér á sýkta svæðinu, það getur aukið á ertinguna
- Ef þú notar lyf sem eiga að berast inn í leggöngin getur verið gott að nota þau einnig þegar tíðir eru
- Ef þú ert með sýkingu þá getur verið betra að nota dömubindi frekar en túrtappa á meðan á tíðum stendur
- Ekki nota lyktarsterkar sápur eða í raun neina sápu nema sú sé sérstaklega gerð fyrir píkuna
- Ef lyfin slá ekki á einkenni þá er vissara að fara aftur til læknis