Lítt þekktur Bandaríkjamaður leiðir eftir fyrsta hring 6. febrúar 2015 15:45 Brooks Koepka er að leika vel þessa dagana. Getty
Bandaríkjamaðurinn Nicholas Thompson leiðir á Farmers Insurance mótinu eftir fyrsta hring en hann lék norðurhluta Torrey Pines á átta höggum undir pari í gær. Nafni hans Michael Thompson er í öðru sæti á sjö undir pari en Cameron Tringale og Brooks Koepka, sem sigraði á Phoenix Open um síðustu helgi, koma þar á eftir á sex höggum undir pari. Þá eru fleiri stór nöfn sem byrjuðu vel á Torrey Pines vellinum en þar má nefna Ian Poulter á fimm undir pari og Rickie Fowler sem er á þremur höggum undir pari eftir fyrsta hring.Phil Mickelson hefur tímabilið ekki vel en hann náði ekki niðurskurðinum á Phoenix Open. Hann er meðal keppenda um helgina en eftir að hafa klárað 15 holur á fyrsta hring er hann neðarlega á skortöflunni á einu höggi yfir pari. Það er þó skárra heldur framlag Tiger Woods í gær en hann dró sig úr keppni eftir tólf holur eftir að gömul bakmeiðsli tóku sig upp. Hann var þá á tveimur höggum yfir pari og virtist einnig eiga við sömu erfileika að stríða í stutta spilinu og hafa plagað hann að undanförnu. Allir hringirnir á Farmers Insurance verða í beinni útsendingu á Golfstöðinni en útsending frá öðrum hring hefst klukkan 21:00 í kvöld.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira