Lífið

Fékk húðflúr með „Valhallar-rúnum“ sem enginn getur lesið úr

Bjarki Ármannsson skrifar
Þessi tákn prýða handlegg Hauks Unnars.
Þessi tákn prýða handlegg Hauks Unnars. Mynd/Vísindavefur HÍ
„Getið þið greint þessar rúnir sem ég lét tattúvera á mig?“ Þannig hljómar spurning sem Haukur Unnar Þorkelsson beinir til Vísindavefsins í gær. Haukur lætur fylgja með mynd af rúnum sem hann lét húðflúra á handlegg sinn en hann segir húðflúrarann hafa kallað rúnirnar „Valhallar-rúnir.“ Leit að því heiti skilar engri skilgreiningu á Google og Þórgunnur Snædal rúnafræðingur á bágt með að lesa úr táknunum sem prýða handlegg Hauks.

„Auðvelt er að segja að þetta eru ekki eiginlegar rúnir,“ skrifar Þórgunnur. „Erfiðara er að vita hvert þessi tákn hafa verið sótt. Líklega er best að spyrja þann sem gerði tattúveringuna hvar hann hafi fengið þessi tákn, sem ekki eru læsilegar rúnir, nema þá sem grunnhugmynd um hvernig rúnir líta út.“

Í samtali við Pressuna segist Haukur hafa fengið húðflúrið til að heiðra son sinn en hann hafi síðar grennslast fyrir og ekki fundið neitt um þessi dularfullu tákn. Kveðst hann ósáttur með þetta og telji sig hafa verið svikinn, enda hljóti það að kosta sitt að lagfæra eða fjarlægja táknin.

Þá segir húðflúrarinn sem gerði verkið Pressunni að honum þyki þetta leitt og að hann vilji endilega reyna að bæta Hauki þetta á einhvern hátt.

Ég fékk þessar rúnir í hendurnar fyrir mörgum árum hjá gullsmiði sem þá var á Laugaveginum,“ segir húðflúrarinn. „Hann var að smíða hálsmen með rúnum og sagði að þetta væru töfrarúnir. Sagði að þær væru íslenskar og ég tók hann því miður trúanlegan.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.