Jim Herman leiðir á Honda Classic eftir fyrsta hring 27. febrúar 2015 14:00 McIlroy á fyrsta hring í gær. Getty
Bandaríkjamaðurinn Jim Herman leiðir eftir fyrsta hring á Honda Classic sem fram fer á PGA National vellinum en hann lék á 65 höggum eða fimm undir pari. Herman er nýliði á PGA-mótaröðinni og er neðarlega á Fed-Ex stigalistanum en hann rétt komst inn í mótið og er greinilega að nýta tækifærið til fulls.Brendan Steele er einn í öðru sæti á fjórum höggum undir pari en Padraig Harrington, Martin Flores og Patrick Reed koma þar á eftir á þremur undir. Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, er mættur til leiks á PGA-mótaröðina eftir vetrarfrí en hann byrjaði ekki vel og kom inn á 73 höggum eða þremur yfir pari. Hann var á tímabili á fimm yfir pari en tveir fuglar á síðustu tveimur holunum björguðu Norður-Íranum frá því að vera meðal neðstu manna. Fleiri stór nöfn voru í vandræðum á fyrsta hring en þar má nefna Graeme McDowell á fjórum undir og Dustin Johnson og Ernie Els á sjö yfir pari. Golfstöðin sýnir beint frá Honda Classic alla helgina og hefst útsending frá öðrum hring klukkan 20:00 í kvöld.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira