Týpuhúfur í takmörkuðu upplagi Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 9. mars 2015 15:00 Þórunn hannaði húfur sem seldar verða í takmörkuðu upplagi yfir HönnunarMars mynd/gunnar sverrisson „
Fyrirtækið 66°Norður bað mig um að gera sérstaka útgáfu af þessari húfu sem er bara seld yfir HönnunarMars,“ segir Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sem hefur hannað nýja útgáfu af hinni klassísku húfukollu. Húfan hefur átt miklum vinsældum að fagna á síðastliðnum árum hjá hópi sem oft er kenndur við hipstera, en fyrst eftir að hún kom á markaðinn, fyrir rúmum fimmtíu árum, prýddi hún einkum höfuð sjó- og vinnumanna. „Það þekkja náttúrulega allir þessa húfu, þetta er í rauninni húfa sem er búin að vera hjá okkur í áratugi og sjóarar og vinnumenn hafa verið með í gegnum tíðina,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður. „Það var frekar auðvelt, svona þegar ég fór að spá í hvaðan 66°Norður kemur og uppruna húfunnar þá langaði mig að vinna eitthvað með það og fór að skoða Reykjavíkurhöfn. Mynstrið er eiginlega Reykjavíkurhöfn,“ segir Þórunn þegar hún er spurð að því hvort það hafi ekki verið erfitt að taka svo þekkta hönnun og gera nýja útgáfu. „Ég vona að hún verði vinsæl,“ segir Þórunn glöð í bragði og bætir við: „Þetta eru þrjár nýjar týpur og eitt mynstrið er í tveimur litum.“ Mynstrið sem innblásið er af Reykjavíkurhöfn kemur í tveimur litum, ljósbleikum og bláum, en hin týpan er dökkblá í grunninn og er mynstrið sem prýðir hana vísun í Pyropet-kerti Þórunnar. Það er nóg um að vera hjá Þórunni þessa dagana því auk húfunnar góðu er væntanlegt nýtt kerti í Pyropet-línuna. „Það er fugl sem er að koma núna í lok mars byrjun apríl, ég ætla að sýna fyrstu eintökin af honum núna á HönnunarMars.“ Kertin nutu mikilla vinsælda þegar þau komu út á síðasta ári. Fyrstu kertin voru í formi katta og þegar kveikt er á kertinu birtist smátt og smátt beinagrind sem er jafnframt hið mesta stofustáss. „Fuglinn kemur í tveimur nýjum litum, mintugrænum og gulum,“ segir hún en fleiri dýrategundir eru væntanlegar í Pyropet-línunni. „Hann er töluvert minni, bara svona lítill smáfugl, eiginlega í raunstærð.“ Pyropet-kertin verður hægt að berja augum í verslunum víða og verður kveikt á einu kerti á hverjum degi HönnunarMars, en fuglinn kemur í sölu um mánaðamótin mars-apríl. Húfurnar eru framleiddar í takmörkuðu upplagi og verða einungis seldar í verslun 66°Norður í Bankastræti.
HönnunarMars Mest lesið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Losnaði við alla fíkn á augabragði: „Því Guð er með skyndilausnir líka“ Áskorun Trommari New Pornographers ákærður fyrir vörslu barnaníðsefnis Lífið Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Lífið Krakkatían: Páskar, söngkeppnir og afmælisbörn Lífið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Veikindafríi Páls Óskars lokið Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Fleiri fréttir Gærurnar verða að hátísku Húsfyllir þegar tískusýning tók yfir Ásmundarsal Sjáðu tískusýningu heitustu hönnuða framtíðarinnar Skúli Mogensen, Andri Snær og Sandra Barilli í stuði Troðfullt á opnun hjá ofurskvísum Héldu að hún væri rokkstjarna eða gift ríkum gaur Biður drottninguna að blessa heimilið Krotaði á átta milljón krónu tösku móður sinnar Orðin þrítug og nennir ekkert að pæla í áliti annarra Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf Hátísku-Laufey á fremsta bekk í París „Bara gaman þegar fólk er í sjokki yfir okkur“ Enginn nakinn á Óskarnum Sjá meira
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp