Guðmundur Ágúst sigraði með glæsibrag á sterku háskólamóti 15. mars 2015 20:24 Guðmundur Ágúst Kristjánsson. GSÍ
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR sigraði í dag á Seminole Intercollegiate háskólamótinu sem fram fór Southwood keppnisvellinum í Flórída. Hann lék stórkostlegt golf alla helgina og eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 63 höggum eða níu undir pari fylgdu tveir aðrir góðir hringir upp á 67 og 69 högg. Guðmundur, sem spilar fyrir golflið East Tennessee State háskólans, endaði því á 17 höggum undir pari en hann sigraði mótið að lokum með þremur höggum. Mótið var gríðarlega sterkt enda mörg af bestu háskólaliðum Bandaríkjanna með en margir af bestu kylfingum PGA-mótaraðarinnar hafa komið upp í gegn um háskólagolfið í Bandaríkunum. Guðmundur Ágúst hefur um árabil verið einn af efnilegustu kylfingum Íslands en hann er margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkum, varð klúbbmeistari GR árið 2010 aðeins 17 ára gamall og sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni árið 2013.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira