Valspar Championship hófst í gær 12. mars 2015 23:05 Henrik Stenson á fyrsta hring í gær. Getty
Englendingurinn Brian Davis er í efsta sæti á Valspar Championship sem hófst í gær en hann lék Copperhead völlinn í Flórída á 65 höggum eða sex undir pari. Á eftir honum koma Bandaríkjamennirnir Sean Ohair og Ricky Barnes á fimm höggum undir pari en margir kylfingar koma á eftir þeim á þremur eða fjórum höggum undir. Margir sterkir kylfingar eru með um helgina en Svíinn Henrik Stenson er stærsta nafnið sem er ofarlega á skortöflunni en hann kom inn á 67 höggum eða fjórum undir pari.Ian Poulter byrjaði líka vel og er á þremur höggum undir pari eftir fyrsta hring en ungstirnið Jordan Spieth, sem margra augu verða eflaust á um helgina, er á einu höggi undir pari. Þá vekur athygli að Írinn Padraig Harrington, sem sigraði á Honda Classic með glæsibrag fyrir aðeins hálfum mánuði síðan, lék fyrsta hring á fimm yfir pari og er meðal neðstu manna. Það var þó skömminni skárra heldur en frammistaða hins litríka John Daly á fyrsta hring en hann situr einn í síðasta sæti eftir hring upp á 81 högg eða tíu yfir pari. Copperhead völlurinn á Innisbrook golfsvæðinu er af mörgum talinn einn sá skemmtilegasti á PGA-mótaröðinni en Golfstöðin mun sýna frá Valspar meistaramótinu alla helgina.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spurðu stuðningsmenn Man United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira