Ólafía og Valdís náðu sínum besta árangri frá upphafi á LETAS Anton Ingi Leifsson skrifar 9. maí 2015 21:30 Ólafía Þórunn í eldlínunni. vísir/daníel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni náðum frábærum árangri á ASGI meistaramótinu sem lauk í Sviss í dag, en mótið er hluti af LETAS mótaröðinni. Mótið var hluti af LETAS atvinnumótaröðinni í Evrópu sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna á eftir sjálfri LET Evrópumótaröðinni. Ólafía endaði í fimmta sæti á -5 höggum samtals, en hún náði sér ekki á strik á lokahringnum þar sem hún lék á 75 höggum. Hún var efst fyrir lokahringinn. Valdís Þóra lenti í sjöunda til níunda sæti, en hún lék lokahringinn á 70 höggum og samtals -3. Þetta er besti árangur þeirra beggja á tímabilinu og besti árangurinn á þessari sterku atvinnumótaröð. Stigahæstu keppendurnir á LETAS vinna sér inn keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Þetta er þriðja mót keppnistímabilsins en íslensku kylfingarnir ætla að leggja áherslu á LET Access mótaröðina á þessu tímabili. Þetta er í fyrsta sinn sem tvær íslenskar konur eru með keppnisrétt á þessari mótaröð en Valdís Þóra er að hefja sitt annað tímabil á LET Access mótaröðinni.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira