Birgir Leifur í 8. til 15. sæti 8. maí 2015 16:39 Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/GSÍmyndir
Birgir Leifur Hafþórsson lék á 71 höggi eða högg undir pari á lokahringnum á NorthSide Charity Challenge sem fram fór á Lyngbygaard golfvellinum í Danmörku. Íslandsmeistarinn úr GKG lék hringina þrjá á -2 samtals (68-75-71) og endaði hann í 8. til 15. sæti. Ólafur Björn Loftsson, GKG, var einnig á meðal keppenda en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Hann lék á +8 samtals (74-78). Mótið er hluti af Nordic Golf League, eða ECCO atvinnumótaröðinni. Þetta er annað mótið á þessu tímabili hjá Birgi en hann endaði í 5.–9. sæti á Bravo Tours Open sem fram fór fram á Rømø vellinum rétt við bæinn Tønder syðst á Jótlandi í síðustu viku. Þar lék Birgir Leifur á (79-67-72). Ólafur Björn endaði í 11.–13. sæti á því móti (73-76-71). Mótið er fjórða mótið hjá Ólafi Birni á þessu tímabili. Hann endaði í 41. og 27. sæti á fyrstu tveimur mótunum sem fram fóru á Spáni. Ólafur er með fullan keppnisrétt á þessari mótaröð. Birgir Leifur er að leika á sínu öðru móti á þessu tímabili. Hann er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu. Birgir mun leika á nokkrum mótum á ECCO mótaröðinni á þessu tímabili en hann leggur alla áherslu á Áskorendamótaröðina. Nordic Golf League / ECCO mótaröðin er í hópi atvinnudeilda sem eru í þriðju deild atvinnumótaraða í Evrópu. Það er að miklu að keppa þar sem að fimm stigahæstu kylfingarnir í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili. Mótaröðin er samvinnuverkefni atvinnumótaraða í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira