Dóu í átökum um síðasta matinn Samúel Karl Ólason skrifar 17. maí 2015 18:20 Fólkið heldur nú til í vöruskemmu í bænum Langsa í Indónesíu. Mörg þeirra eru vannærð. Vísir/AFP
Flóttamenn sem bjargað var úr sökkvandi skipi við stendur Indónesíu segja að um hundrað þeirra hafi látið lífið í átökum um síðasta matinn um borð. Mörgum var kastað útbyrðis, einhverjir voru stungnir og fólk var jafnvel hengt um borð í skipinu.Samkvæmt BBC var um 700 manns bjargað úr skipinu sem var að sökkva. Blaðamaður ræddi við nokkra af skipinu, en tekur þó fram að sögur þeirra hafi ekki verið staðfestar. Hins vegar lýstu þeir átökunum á mjög svipaðan hátt. Flóttamennirnir reyndu að sigla til Malasíu, en sjóherinn þar rak þau á brott. Talið er að þúsundir flóttamanna séu nú á reki við Suðaustur-Asíu eftir að hafa verið neitað að koma að landi. Skipið sem fólkinu var bjargað úr hafði verið á ferðinni í tvo mánuði, en áhöfn þess hafði yfirgefið það. Fólkinu var bjargað af sjómönnum frá Indónesíu á föstudaginn. Fólkið er að mestu frá Myanmar og Bangladess. Í morgun var sagt frá því að minnst fjórir bátar með allt að þúsund flóttamenn séu nú við akkeri við strendur Myanmar. Þar sem yfirvöld í Indónesíu og Malasíu stöðva báta sem reyna að fara þangað, hafa smyglararnir sem sjá um bátana ekki lagt af stað. Þá neita þeir að hleypa fólkinu frá borði án þess að greitt sé lausnargjald fyrir þau.
Flóttamenn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira