Breytti pútternum og leiðir á Byron Nelson meistaramótinu 29. maí 2015 14:00 Bowditch á fyrsta hring í gær. Getty
Það borgar sig stundum að breyta golfbúnaðinum en Ástralinn Steven Bowditch fann svo sannarlega fyrir því á fyrsta hring á Byron Nelson meistaramótinu. Fyrir hringinn þyngdi Bowditch pútterinn sinn um 10 grömm sem virðist hafa verið góð hugmynd þar sem hann lék fyrsta hring á 62 höggum eða átta undir pari en hann setti mörg góð pútt niður. Bandaríkjamaðurinn Jimmy Walker er í öðru sæti á sex höggum undir pari en hann fékk þrjá fugla á síðustu þremur holunum. TPC Four Seasons völlurinn er í nágrenni Dallas í Texas þar sem Jordan Spieth ólst upp og var þessi næst besti kylfingur heims vel studdur af áhorfendum á fyrsta hring. Hann kom inn á 69 höggum eða einu undir pari en hann fékk aðeins tvo fugla á öllum hringnum og þarf að spila betur ef hann ætlar að berjast um sigurinn fyrir framan sína heimamenn. Annar hringur á Byron Nelson meistaramótinu verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 20:00 í kvöld.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira