Tryggði sér sigurinn á BMW International Open eftir gallalausan lokahring 28. júní 2015 00:00 Larrazabal og kylfusveinn hans fagna sigrinum. Getty
Spánverjinn Pablo Larrazabal sigraði á BMW International Open sem kláraðist í Þýskalandi í gær en hann lék hringina fjóra á Munchen vellinum á 17 höggum undir pari eftir gallalausan lokahring upp á sex högg undir pari. Þetta er fjórði sigur Larrazabal á Evrópumótaröðinni en hann sigraði einnig á þessu móti árið 2011. Mikil spenna var á lokahringnum en fyrrum besti kylfingur heims, Henrik Stenson, endaði í öðru sæti á 16 höggum undir pari eftir að hafa komið sér í toppbaráttuna með lokahring upp á 65 högg eða sjö undir pari. Gamla kempan Retief Goosen blandaði sér einnig í baráttu efstu manna á lokahringnum og var um tíma í forystu, en hann sló tvo bolta í vatnstorfærur á seinni níu holunum og þurfti að sætta sig við fjórða sætið á 14 höggum undir pari. Fyrir sigurinn fær Larrazabal rúmlega 50 milljónir króna í verðlaunafé ásamt þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu í júlí.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira