Birgir Leifur fer vel af stað í Frakklandi Kristinn Páll Teitsson skrifar 24. júlí 2015 08:30 Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur. Vísir/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, fer vel af stað á öðrum hring á Áskorendamótaröðinni í Frakklandi en hann lék fyrri níu holur vallarins á fjórum höggum undir pari. Birgir Leifur sem fór af stað klukkan 07.30 á staðartíma hóf leik á 10. holu í dag en seinni níu holurnar reyndust honum strembnar í gær. Lék hann þær á tveimur höggum yfir pari í gær en allt annað var upp á teningunum í dag. Birgir Leifur nældi í par á fyrstu tveimur holum dagsins en því fylgdu þrír fuglar á næstu fjórum holum vallarins. Þá nældi hann í annan fugl á níundu holu dagsins, átjándu holu vallarins og lauk hann fyrri níu holum vallarins því á fjórum höggum undir pari. Birgir Leifur er því alls á fimm höggum undir pari eftir fyrri níu en hann gerði sér lítið fyrir og fékk fugl á þeim þremur holum sem reyndust kylfingum hvað erfiðastar í gær.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira