Justin Rose minnir á sig fyrir lokahringinn á Firestone 9. ágúst 2015 12:00 Justin Rose sýndi allar sínar bestu hliðar á þriðja hring. Getty
Justin Rose og Jim Furyk mynda lokahollið á lokahringnum á Bridgestone Invitational en eftir 54 holur eru þeir á níu höggum undir pari. Rose lék gallalaust golf á þriðja hring og kom inn á 63 höggum eða sjö undir pari. Hann og Furyk eiga tvö högg á næsta mann sem er Írinn Shane Lowry en hann er á sjö höggum undir pari. Þá eru mörg stór nöfn sem deila fjórða sætinu á fimm undir pari sem gætu blandað sér í baráttu um sigurinn með góðum lokahring. Þar má helst nefna Ian Poulter, Bubba Watson og Henrik Stenson en Jordan Spieth sem hefði getað farið í efsta sæti heimslistans með sigri um helgina siglir lygnan sjó neðar á skortöflunni á sléttu pari. Lokahringurinn verður eflaust mjög spennandi en hann hefst á Golfstöðinni klukkan 16:00 í dag.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spurðu stuðningsmenn Man United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira