Sara Björk hafði betur gegn Glódísi Perlu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 19:17 Sara Björk Gunnarsdóttir. Mynd/KSÍ
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í FC Rosengård unnu í kvöld 2-1 útisigur í Íslendingaslag á móti Eskilstuna United í sænsku kvennadeildinni í fótbolta en þarna mættust tvö efstu lið deildarinnar. Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Eskilstuna United gátu komist í toppsætið með sigri en eftir sigurinn er Rosengård-liðið komið með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Sara Björk og Glódís Perla spiluðu báðar allan leikinn en þær eru fastamenn í sínum liðum alveg eins og hjá íslenska landsliðinu. Vaila Barsley kom Eskilstuna United í 1-0 strax á fimmtándu mínútu leiksins og þannig var staðan í 39 mínútur. Natasa Andonova afgreiddi leikinn með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla þegar um klukkutími var liðinn af leiknum. Seinna markið skoraði hún eftir stoðsendingu frá hinni svissnesku Ramonu Bachmann. Natasa Andonova er fyrirliði makedóníska landsliðsins en Ísland og Makedónía eru einmitt saman í riðli í undankeppni EM 2017. Eskilstuna-liðið var búið að byrja mjög vel eftir HM-fríið, liðið var taplaust og hafði unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum eftir að mótið hófst á nýjan leik.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Crystal Palace - Rayo Vallecano | Úrslitaleikur Sambandsdeildarinnar Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Sjá meira