Haraldur Franklín lék á átta höggum undir pari á degi eitt á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 13:49 Haraldur Franklín Magnús slær í dag. Mynd/gsimyndir.net
Haraldur Franklín Magnús úr GR lék gríðarlega vel á fyrsta hringnum á Evrópumóti áhugamanna golfi í Slóvakíu í dag. Sex íslenskir áhugakylfingar eru á meðal keppenda á Evrópumeistaramóti einstaklinga í ár og hafa aldrei verið fleiri. Haraldur Franklín Magnús úr GR lék á átta höggum undir pari eða 64 höggum samtals. Hann deilir efsta sætinu þessa stundina en kylfingar eiga eftir að ljúka keppni á fyrsta hring. Gísli Sveinbergsson lék á 75 höggum eða +3 og Bjarki Pétursson lék á 77 höggum. „Þetta gekk mjög vel og ég er mjög sáttur með þessa byrjun. Ég sló boltann vel og kom mér í mörg fuglafæri á hringnum. Lengdarstjórnunin í innáhöggunum er mjög mikilvæg og það tókst vel í dag. Í upphafshöggunum var ég aldrei í vandræðum og ég hitti allar flatir í tilætluðum höggafjölda. Markmiðið fyrir hringinn var að ná 18 pörum og það er alltaf gaman þegar fuglarnir detta inn,“ sagði Haraldur Franklín eftir hringinn í dag við golf.is. Axel Bóasson, Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eiga eftir að ljúka leik í dag. Leikið er á Penati golfvallasvæðinu þar sem tveir 18 holu vellir eru en Jack Nicklaus hannaði báða vellina. Aðeins stigahæstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna fá keppnisrétt á þessu móti og er þetta metfjöldi hjá Íslendingum sem er ánægjuefni. Þeir sem taka þátt fyrir Íslands hönd er: Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Bjarki Pétursson (GB) og Gísli Sveinbergsson (GK). Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari Íslands er með í för og verður keppendum til halds og trausts. Haraldur Franklín og Ragnar Már Garðarsson úr GKG tóku þátt í fyrra á þessu móti þegar það fór fram í Skotlandi. Þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að keppt er í höggleik og að loknum þriðja keppnisdegi komast 60 efstu áfram á lokakeppnisdaginn. Alls eru 144 keppendur sem komast inn á þetta sterka mót.Þeir sem taka þátt fyrir Íslands hönd eru Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Bjarki Pétursson (GB) og Gísli Sveinbergsson (GK).Mynd/gsimyndir.net
Golf Mest lesið Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Sport Keyrði margoft á bíl körfuboltakonunnar Körfubolti Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Formúla 1 „Má ekkert segja um þessa dómara en þetta var hræðilegt“ Sport Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Körfubolti Elliði Snær markahæstur í mikilvægum sigri Handbolti Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira