Í lengri tíma hefur því verið haldið fram að meðfædd greind væri eiginleiki sem ekkert væri hægt að bæta við né breyta. Farsælast þótti að búa til það besta úr því sem viðkomandi fékk í vöggugjöf.
Nokkur framþróun hefur orðið á þessu sviði og vísindamenn komið fram með sannanir sem sýna fram á að við getum aukið hæfni okkar á ýmsum sviðum sálargáfna. Með því að læra nýja færni og auka þroska eykst virkni tauga í heilanum, við verðum þar af leiðandi örlítið greindari en áður.
Það er leikur einn að styrkja þessa virkni með skemmtilegum leiðum, hér koma nokkrar hugmyndir fyrir þig, kæri lesandi.
Tónlist
Lærðu á nýtt hljóðfæri eða dustaðu rykið af þeim gömlu og fikraðu þig áfram. Það er aldrei of seint að læra að spila á hljóðfæri. Tónlist hefur jákvæð áhrif á hugmyndaflugið svo um munar, bætir minni og eykur almenna gleði.
Lestur
Fáðu vini þína með þér í leshring og reynið að hittast sem allra oftast. Yndislestur er róandi, dregur úr streitu og örvar listræna tilhneigingu og hugmyndaflug. Lestur getur líka styrkt tilfinningalega greind og gert þér auðveldara fyrir að skilja aðra og setja þig í þeirra spor.
Líkamsrækt
Regluleg líkamsrækt skilar sér ekki einungis í betra líkamlegu formi heldur styrkir hún einnig andlegu hliðina. Aukið blóðflæði til heila eykur minni, fókus og einbeitingu.
Tungumál
Það er gaman að geta slegið um sig á nokkrum tungumálum en þau hafa einnig jákvæð áhrif á heilastarfsemina. Þeir sem tala fleiri en tvö tungumál eru sagðir vera sleipari í að finna lausnir á vandamálum sem upp rísa og vera betri stjórnendur.
Heilaleikfimi
Haltu heilanum við með sértækri hugarleikfimi. Krossgátur, sudoku, gátur, og spilakvöld eru úrvalsskemmtun fyrir heilann og alls engin tímaeyðsla ef rétt er að staðið. Bjóddu vinum þínum heim í spilakvöld, það styrkir bæði vinaböndin og heilann.
Hugleiðsla
Sífellt fleiri eru farnir að hugleiða og veit það einungis á gott. Hugleiðsla er aldagömul aðferð sem er til margs nýtileg. Hana er hægt að nota til þess að bæta andann, hvíla, hreinsa hugann og styrkja einbeitingu. Sumir myndu jafnvel lýsa hugleiðslu sem nuddtíma fyrir heilann, ekki er það nú slæmt.
