Danir stöðva lestir til og frá Þýskalandi Samúel Karl Óalson skrifar 9. september 2015 17:01 Vísir/EPA
Lögreglan í Danmörku hefur stöðvað allar lestir til og frá Þýskalandi sem og lokað vegum þar á milli. Það var gert vegna hundruð flóttamanna sem tæla að reyna að komast til Svíþjóðar. Flóttamenn óttast að skrá sig í Danmörku, sem taka við færri flóttamönnum en Svíþjóð, og eiga jafnvel ættingja þar. Rúmlega 800 flóttamenn komu til Danmerkur í byrjun vikunnar. Fjölmargir þeirra hurfu en líklegt þykir að margir þeirra ætli sér að fara til Svíþjóðar. Lögreglan stöðvaði þrjár lestir á milli Danmerkur og Þýskalands, sem í voru samtals 500 flóttamenn, í dag. Flestir neituðu að yfirgefa lestirnar en um 30 manns hlupu á brott. Þau voru þó sótt af lögregluþjónum og færð í flóttamannabúðir. Flóttamennirnir eru hræddir við að enda í flóttamannabúðum í Danmörku og að á endanum verði þeim neitað um hæli. Um 300 flóttamenn lögðu af stað gangandi frá landamærum Danmerkur og Þýskalands. Þeim hafði verið komið fyrir í skóla í bænum Padborg, en þau vilja fara til Svíþjóðar. Flóttamennirnir ætla sér að ganga til Kaupmannahafnar og taka þaðan lest til Malmö. Lögreglan hefur ekki reynt að stöðva fólkið en fylgir þeim eftir.
Flóttamenn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira