Axel og Þórður í erfiðri stöðu í Þýskalandi 17. september 2015 09:00 Axel Bóasson, kylfingur úr GK. Mynd/GSÍ
Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, eru í erfiðri stöðu eftir tvo daga á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina sem fer fram á Fleesensee vellinum í Þýskalandi. Axel lék í gær líkt og deginum áður á 73 höggum, einu höggi yfir pari en Axel fékk alls fjóra skolla og þrjá fugla á hringnum. Lék hann fyrri níu holur dagsins á pari en seinni níu á einu höggi yfir pari líkt og deginum áður. Þórður Rafn náði sér betur á strik í gær en hann fékk þrjá skolla og tvo fugla á hringnum. Tókst honum að leika seinni níu holur vallarins á pari eftir að hafa leikið þær á tveimur höggum yfir pari deginum áður. Axel Bóasson er í 51. sæti á tveimur höggum yfir pari en Þórður situr 13. sætum neðar á fimm höggum yfir pari. Efstu 22 kylfingarnir komast á næsta stig úrtökumótsins.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira