Axel og Þórður náðu sér ekki á strik á fyrsta degi Kristinn Páll Teitsson skrifar 16. september 2015 10:00 Axel Bóasson, kylfingur úr GK. Vísir/Daníel
Axel Bóasson, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili og Þórður Rafn Gissurarson, kylfingur úr Golfklúbb Reykjavíkur, náðu sér ekki á strik í gær á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Þórður Rafn sem er Íslandsmeistari í höggleik og Axel sem er Íslandsmeistari í holukeppni eru einu Íslendingarnir sem taka þátt í mótinu sem fer fram í Þýskalandi. Ólafur Björn Loftsson, GKG, tekur þátt á fyrsta stigi í Frakklandi á næstu vikum en Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, fer beint inn á annað stig. Hringur gærdagsins var sveiflukenndur hjá báðum kylfingum en Axel lék fyrri níu holurnar á pari með tvo fugla og tvo skolla. Þórður lék fyrri níu holum vallarins sömuleiðis með tvo skolla en enga fugla. Þórður bætti við öðrum þremur skollum á seinni níu holum vallarins en nældi í fugl og lauk leik á 76 höggum, fjórum yfir pari. Axel fékk einn skolla á seinni níu og lauk leik á einu höggi yfir pari. Efstu 22 kylfingarnir komast á næsta stig úrtökumótsins en Axel er í 35-40. sæti eftir fyrsta dag og Þórður er í 58-70. sæti.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira