Króatar opnað landamærin að Serbíu 25. september 2015 16:44 Flóttafólk í Króatíu. vísir/epa
Króatar hafa opnað landamæri sín að Serbíu að nýju og er nú öll umferð yfir landamærin heimiluð. Þeir segjast þó tilbúnir til að loka þeim aftur, sjái þeir tilefni til. Stjórnvöld í Zagreb ákváðu í síðustu viku að loka landamærunum, vegna mikils fjölda flóttamanna sem þangað leita frá Serbíu. Kröfðust stjórnvöld þess að flóttamenn yrðu ekki einvörðungu sendir til Króatíu og lögðu til að þeir yrðu jafnframt sendir til Ungverjalands og Rúmeníu, og meinuðu í kjölfarið öllum serbneskum flutningabílum að aka yfir landamærin. Serbar brugðust ókvæða við og ákváðu í gær að banna allan innflutning frá Króatíu til landsins. Króatar gengu þá skrefinu lengra og bönnuðu öllum bílum með serbnesk bílnúmer að aka yfir landamærin. Serbar leituðu til Evrópusambandsins, sem í morgun krafði Króata skýringa á málinu. Skömmu síðar tilkynnti Zoran Milanovic að landamærin yrðu opnuð á ný. Alls hafa sextíu þúsund flóttamenn leitað til Króatíu í þessari viku. Illa gengur að ráða við þennan mikla straum flóttafólks, en króatísk yfirvöld segja að flóttamenn verði að að sækja um hæli í landinu, ella verði þeir flokkaðir sem ólöglegir innflytjendur.
Flóttamenn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira