Ólafur Björn úr leik á fyrsta stigi úrtökumótsins í Frakklandi Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. október 2015 11:30 Ólafur Björn Loftsson veltir hér fyrir sér púttlínunni. Vísir/Daníel
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr GKG, féll í gær úr leik á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Ólafur Björn tók þátt í úrtökumóti á Hardelot vellinum í Frakklandi og lauk leik á tólf höggum yfir pari en hann endaði í 78-79. sæti af 103. Aðeins 22 kylfingar komust á næsta stig úrtökumótsins. Ólafur lék vel á fyrsta deginum og kom inn á einu höggi yfir pari eftir að hafa krækt í fjóra fugla en hann náði sér ekki á strik á öðrum leikdegi og var á fimm höggum yfir pari að öðrum leikdegi loknum. Ólafur fékk síðan sannkallaða martraðabyrjun á þriðja leikdegi í gær er hann fékk tvöfaldan skolla á fyrstu holu en hann lék hringinn á sjö höggum yfir pari. Er því einn íslenskur kylfingur eftir en Birgir Leifur Hafþórsson mun leika á öðru stigi úrtökumótsins á Spáni í nóvember. Líkt og Ólafur komust Þórður Rafn Gissurarson og Axel Bóasson ekki í gegn um fyrsta stig úrtökumótsins.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira