Axel tryggði sér keppnisrétt á Nordic League mótaröðinni Kristinn Páll Teitsson skrifar 11. október 2015 11:00 Axel Bóasson, kylfingur úr GK. Mynd/gsimyndir.net
Axel Bóasson, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili og ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni, tryggði sér keppnisrétt á Nordic League mótaröðinni í golfi í gær en Axel lenti í 23. sæti á lokaúrtökumótinu í Danmörku í gær. Um er að ræða þriðju sterkustu atvinnumannamótaröð Evrópu en ásamt Axeli lék Ólafur Björn Loftsson á mótinu og endaði í 49. sæti. Tryggði hann sér takmarkaðan þátttökurétt á mótaröðinni á næsta ári. Axel lék lokahringinn í gær á 68 höggum, fjórum höggum undir pari en hann var á einu höggi yfir pari fyrir daginn. Fékk Axel fjóra fugla á hringnum og tapaði ekki höggi en Ólafur tapaði þremur höggum eftir að hafa leikið á tveimur höggum undir pari fyrstu tvo hringina. Axel verður því með fullan keppnisrétt á mótaröðinni á næsta ári en Ólafur Björn verður með takmarkaðann keppnisrétt.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira