Birgir Leifur lék aftur undir pari á öðrum leikdegi Kristinn Páll Teitsson skrifar 7. nóvember 2015 14:30 Birgir Leifur púttar hér á Íslandsmótinu í höggleik árið 2014. Vísir/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, lauk leik á öðrum degi á öðru stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina á einu höggi undir pari en hann er að tveimur dögum loknum á sex höggum undir pari. Birgir Leifur komst beint inn á annað stig úrtökumótsins eftir góðan árangur á Áskorendamótaröðinni í sumar en hann lék frábært golf á fyrsta leikdegi í gær. Eftir að hafa fengið skolla á fyrstu holu krækti hann í fjóra fugla og einn örn á fyrsta hring. Birgir Leifur hóf leik í dag líkt og í gær á skolla en fylgdi því eftir með þremur fuglum á næstu fimm holum. Birgir tapaði hinsvegar höggi á síðustu tíu holum dagsins en hann fékk þrjá skolla, tvo fugla og fimm pör á síðustu tíu holunum. Birgir Leifur deilir þegar þetta er skrifað þriðja sæti með fjórum öðrum kylfingum en það eru ekki allir kylfingar komnir í hús. Mótið sem fer fram á Las Colinas golfvellinum í Alicante lýkur á mánudaginn.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira