Birgir Leifur spilaði sinn besta hring en er úr leik Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. nóvember 2015 14:50 Birgir Leifur fór illa út úr fyrsta hringnum og náði ekki að vinna sig upp úr honum. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG spilaði sinn besta hring á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á Spáni í dag en er engu að síður úr leik. Birgir Leifur spilaði hringinn í dag á 68 höggum eða tveimur höggum undir pari. Hann fékk fjóra fugla og tvo skolla. Í heildina spilaði Birgir fjóra hringi á þremur höggum yfir pari. Hann spilaði þann fyrsta á fjórum höggum yfir, annan hringinn á pari og var svo á einu höggi yfir pari í gær. Verkefnið fyrir daginn í dag var því risastórt. Um 70 Kylfingar komast í gegnum niðurskurðinn og spila úrslitahringina tvo, en aðeins 25 fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári sem er sú næst sterkasta í heimi. Birgir Leifur hefði þurft að spila á sex höggum undir pari í dag til að komast í gegnum niðurskurðinn.Hér má sjá stöðuna í mótinu.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira