Sergio Garcia lék best á fyrsta hring á BMW meistaramótinu 12. nóvember 2015 17:00 Sergio lék frábært golf á fyrsta hring í Shanghai. Getty.
Spánverjinn vinsæli, Sergio Garcia, leiðir eftir fyrsta hring á BMW meistaramótinu sem fram fer á Lake Malaren vellinum í Shanghai í Kína. Garcia lék frábært golf, fékk 9 fugla á fyrstu 14 holurnar og kláraði hringinn á 64 höggum eða átta undir pari. Suður Kóreumaðurinn An Byeong Hun og Frakkinn Victor Dubuisson deila öðru sætinu á sjö höggum undir pari en sá síðarnefndi sigraði einmitt á Turkish Airlines mótinu í síðustu viku og virðist vera í frábæru formi. Mörg þungavigtarnöfn byrjuðu einnig vel á fyrsta hring en Englendingarnir Justin Rose og Paul Casey eru á fimm undir, Ian Poulter og Henrik Stenson léku á fjórum höggum undir pari og fyrrum besti kylfingur heims, Martin Kaymer er á þremur undir. BMW meistaramótið er eitt veglegasta mót ársins á Evrópumótaröðinni og verðlaunaféð gífurlega hátt en það verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni um helgina.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira