„Þetta var í fyrsta sinn sem þessi keppni var haldin og við vorum þrjátíu sem sendum inn köku,“ segir Ásgerður en mikill áhugi var meðal allra hinna starfsmannanna á að fá að smakka og gefa einkunn. „Hér var smakk tvisvar í viku í nokkrar vikur og sjö kökur komust í úrslit,“ segir hún en þar á meðal var kaka Ásgerðar sem var marengsterta með piparmyntusúkkulaði í rjómanum. „Ég ákvað að breyta til fyrir úrslitin og setti lakkrís- og karamellukrem á milli botnanna. Það sló rækilega í gegn og mín kaka sigraði með yfirburðum,“ segir hún glaðlega og bætir við að kremið virðist hafa gert útslagið.
Lesandi jólasveinar
Ásgerður á afmæli 20. desember og segist vera mikið jólabarn. „Ég skreyti töluvert og held mikið upp á safn af lesandi jólasveinum,“ segir Ásgerður sem fannst tengingin sniðug enda er hún bókasafnsfræðingur. „Lesandi jólasveinar liggja ekki á lausu þannig að ef ég sé þá freistast ég til að kaupa þá. Uppáhaldssveinarnir mínir eru tveir samstæðir úr tré sem Bragi Baldursson hjá Hjartans list útbjó sérstaklega fyrir mig.“

4 egg
300 g flórsykur (í botn og krem)
2½ bolli kornflex
½ poki Góu karamellukúlur
½ poki Góu lakkrískúlur (Bingó kúlur)
½ l rjómi
100 g suðusúkkulaði
Marengs (2 botnar)
4 eggjahvítur
200 g flórsykur
2½ bolli kornflex
Þeytið eggjahvítur og flórsykur, bætið við kornflexi. Skiptið í tvö form og bakið í 40 mín. við 150°C.
Lakkrís- og karamellukrem
½ poki Góu karamellukúlur
½ poki Góu lakkrískúlur (Bingó kúlur)
1 dl rjómi
Bræðið saman í potti, kælið aðeins og setjið ofan á fyrri marengsbotninn. Síðan er rjóminn þeyttur og honum skellt ofan á og síðan hinn botninn.
Krem ofan á kökuna
4 eggjarauður
100 g flórsykur
100 g suðusúkkulaði
Bræðið suðusúkkulaðið og látið það kólna lítillega. Þeytið saman eggjarauður og flórsykur. Bætið brædda suðusúkkulaðinu út í. Þetta fer ofan á kökuna sem má svo skreyta að vild.