Ég nýt þess að fá frí og vera með fjölskyldunni, aðaljólabarnið á heimilinu er þó maðurinn minn. Hann sér yfirleitt um allar skreytingar, ég sé um jólakortin og pakkana. Skemmtilegasta jólahefðin sem við fjölskyldan höfum tileinkað okkur er að fara upp í Hvalfjörð og velja okkur jólatré og saga. Fá okkur svo kakó og piparkökur á eftir,“ segir Bryndís Björk Reynisdóttir, spurð út í aðventuna.
Fjölskyldan leggur mikið upp úr góðum mat á jólum og tekur Bryndís ekki í mál að hafa dósarauðkál á borðum, enda garðyrkjufræðingur að mennt.
„Við leikum okkur með forréttinn á milli ára en við ruggum ekki bátnum með því að ræða um að breyta aðalréttinum, hamborgarhryggur skal það vera og að sjálfsögðu heimatilbúið rauðkál,“ segir hún sposk. „Flækjustig rauðkálsins fer svo eftir skapi og tíma hverju sinni. Heimagert rauðkál er líka tilvalin jólagjöf handa vinum og ættingjum í fallegum krukkum.“

Rauðkál Bryndísar
(Upprunalega uppskriftin kemur frá Friðriki V)
1 stór haus rauðkál (frá Sigrúnu Páls á Flúðum)
¾ bolli rauðvísedik eða 4% borðedik
1 stórt Jonagold-epli
1/2 bolli sykur
1 bolli Ribena-saft
Sjóðið krukkur og lok.
Skerið rauðkálið í fína strimla. Flysjið og kjarnhreinsið epli og skerið í fína bita. Setjið allt í pott og látið malla í 30 – 40 mínútur. Hrærið reglulega.
Setjið kálið í krukkur og lokið á meðan það er heitt. Ef rauðkálið er sett í frystipoka þarf að láta það kólna vel áður. Gott er að merkja dagsetninguna þegar kálið er gert á pokann og henda í frystinn.
Hærra flækjustig við upprunalegu uppskriftina, eftir skapi:
Beikonflækja
Bryndís svissar stundum eitt bréf af mögru beikoni í smjöri áður en rauðkáli og rest er blandað saman við.
Jólaflækja
Bæta við út í pottinn:
1 tsk. kanill
¼ tsk. negull
¼ tsk. múskat
Sultuflækja
Í stað Ribena-saftarinnar er hægt að blanda bolla af rifsberjahlaupi saman við rauðkálið.