Hellisheiði enn lokuð og búið að loka Kjalarnesi aftur Aðalsteinn Kjartansson skrifar 5. desember 2015 15:09 Vonskuveður og vegir lokaðir víða um land. Vísir/Friðrik Þór
Vegurinn um Kjalarnes hefur aftur verið lokaður eftir að hafa verið opnaður um tíma í dag. Hellisheiði er enn lokuð sem og Mosfellsheiði, Mosfellsdalur og Suðurstrandarvegur. Þá er einnig lokað á Súðavíkurhlíð, Siglufjarðarvegi og í Ólafsfjarðarmúla vegna snjóflóðahættu. Þetta kemur fram í tilkynningu Vegagerðirnar þar sem einnig kemur fram að akstursbann sé á Breiðdalsheiði og Öxi. Vonskuveður er í flestum landshlutum og vegir meira og minna ófærir eða lokaðir. Með öðrum orðum er ekkert ferðaveður. Vegagerðin lýsir færð og aðstæðum svona:Hálka og skafrenningur er á Reykjanesbraut, Sandskeiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víða talsverður snjór á vegum - þæfingur, þungfært eða jafnvel ófært almennri umferð. Ófært og stórhríð er á Fróðárheiði, Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Hálka og stórhríð er víða á Vesturlandi. Á Vestfjörðum er ófært á langleiðum en fært milli flestra þéttbýliskjarna. Þó er Súðavíkurhlíð lokuð vegna snjóflóðahættu. Vonskuveður er einnig á Norðurlandi með skafrenningi, snjókomu og ófærð. Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir vegna snjóflóðahættu og einnig er varað við snjóflóðahættu bæði í Ljósavatnsskarði og Dalsmynni. Á Austurlandi er ófært á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Vatnskarði eystra. Þæfingsfærð er á Fjarðarheiði, snjóþekja á Fagradal en hálka á Oddsskarði. Hálka er með ströndinni suður um.
Veður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira