Hjartans þakkir

Ég er ekki það sem kom fyrir mig. Ég er það sem ég kýs að vera.
Orð Carls Jung bera með sér fyrirheitið um að aðstæður okkar þurfa ekki að skilgreina okkur.
Við getum valið að hefja okkur yfir erfiðleikana á vængjum þakklætisins.
Þegar við beinum sjónum okkar að þakklætinu öðlumst við nýja sýn á aðstæður okkar. Við sjáum að fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Þakklætið er einnig tilvalin leið til að bera kennsl á hlutina sem margir telja sjálfsagða, eins og líf, heilsu og daglegt brauð.
Janúaráskorun: Þakklæti í framkvæmd. Haltu þakklætisdagbók:
Skrifaðu niður fimm hluti sem þú ert þakklát/ur fyrir á hverjum degi.
Þakkaðu fyrir óorðna hluti:Kallaðu til þín það sem þig dreymir um með því að þakka fyrir það.
Dæmi: „Ég þakka fyrir nýja viðskiptavini sem ég fæ að þjóna með vinnu minni á árinu.“
Kærleikskveðjur,
Edda Jónsdóttir
markþjálfi
Tengdar fréttir

Setur þú raunhæf markmið?
Þó að fjölmargir strengi áramótaheit, hafa rannsóknir sýnt að aðeins 5% fólks skrifar niður markmið sín. Það er til mikils að vinna því að 95% þeirra markmiða sem skrifuð eru niður, verða að veruleika. Ef þú vilt ná árangri, skaltu byrja á að skrifa niður

Magnaður bandamaður í lífi og starfi
Edda Jónsdóttir ákvað að læra markþjálfun eftir að hafa farið sjálf í slíka þjálfun. Hún segir þjálfunina vera ákveðið sjálfskoðunarferli sem leiði til betra lífs og nýrra tækifæra.

Tíminn er kominn
Á þessum árstíma er upplagt að skoða það sem fram undan er og leggja drög að komandi ári, skipulagi og tímastjórnun svo að hlutirnir fari á þann veg sem við óskum helst.

Þekkir þú þín kjarnagildi?
Gildin okkar endurspegla það sem skiptir okkur mestu máli í lífinu. Það er mikilvægt að geta skilgreint sín persónulegu kjarnagildi, það er eins og að hafa áttavita í vasanum.

Láttu hendur standa fram úr ermum
Markmiðasetning þarf ekki að vera flókin en stundum vefst hún fyrir fólki. Hérna eru nokkur frábær ráð sem auka líkurnar á því að þú náir sem bestum árangri.