Hljómsveitin leggur af stað til Kína í dag og kemur fram á sjö tónleikum í sjö borgum. „Við byrjum í Peking og fikrum okkur svo alveg niður til Hong Kong. Þetta eru misstórir tónleikastaðir, frá 300 manna upp í þúsund manna staðir,“ segir Arnar.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem að hann fer til Kína. „Ég hef verið að fara með Barða [Jóhannssyni] og Bang Gang til Kína, ég hef farið fjórum sinnum þangað. Ég náði að lauma Leaves-diskum að þeim í Kína þegar ég fór síðast með Barða í mars og í kjölfarið buðu þeir okkur að koma,“ segir Arnar léttur í lundu.
Leaves vinnur nú að nýju efni. „Við höfum unnið að nýju efni í rólegheitunum, vonandi kemur eitthvað nýtt út á þessu ári.“ Á tónleikaferðalaginu ætlar sveitin að leika lög af öllum sínum fjórum plötum. „Við ætlum að enda Kínatúrinn hérna heima en það er ekki alveg ákveðið hvenær þeir tónleikar fara fram.“
Strákarnir í Leaves ætla að njóta lífsins í Hong Kong í nokkra daga áður en þeir koma heim aftur.